sunnudagur, febrúar 24, 2008
Án efa í fyrsta sinn sem úrslit Júrovision koma mér virkilega á óvart. Ég átti ekki von á þessu! Ákvað að reyna að vinna í mínum málum og venjast laginu...hlustaði á það í morgun.. þetta er náttla ekta júrópopp og ekkert skrýtið að það myndi vinna en ég einhvern hélt að hey hey hefði þetta. Júróbandið þarf þó virkilega að vera með almennilegt atriði og dísennt búninga ef það ætlar sér að komast upp úr forkeppninni. Við ætlum ekki einu sinni að reyna að ræða fjólubláa dressið sem liðið var í um daginn..þá var nú svarta spennitreyjan í gær skárri. Ég legg til að ég verði fengin sem sérlegur júróvision ráðgjafi og fái að ráða dansi og búningum ;)
En það er sem sagt búið að draga í riðla og við erum í seinni keppninni þ.e.a.s. fimmtudaginn 22.maí. Ég var mjög ánægð þegar ég sá það því ég held að það væri eitthvað svo glatað að vera á þriðjudagskvöldinu og svo aðalkeppnin ekki fyrr en á laugardeginum. Nú er bara að taka fram dagbókina, taka frá fimmtudaginn 22.maí og laugardaginn 24.maí. Ég gæti vel trúað því að lagið komist upp úr forkeppninni því við munum keppa við 19 lög og 10 komast áfram þannig að þetta ætti að verða auðveldara fyrir okkur en síðustu ár ;) En svo er bara að sjá til hvernig atriðið verður. Ef þau ákveða að fá ekki aðstoð frá mér þá geta þau gleymt þessu ;)
Ingimars 1:52 PM