Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


sunnudagur, febrúar 03, 2008

Suma hluti á mar ekki að gera. Af sumum hlutum lærir mar að svona á mar ekki að gera. Ég lærði í dag að mar á ekki að fara í Smáralind á næststíðasta degi útsala. Ég reyndar vissi þetta svo sem... en löngunin í svört stígvél var svo sterk að ég lét alla skynsemi sem vind um eyrun þjóta. Ég hef ekki átt svört stígvél í fimm ár! Æ kidd you nott. Ég var síðast í svörtum stígvélum árið 2003!! Þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur hvað löngunin var sterk...og það sérstaklega í dag. Ég er búin að leita í mörg mörg ár að réttum stígvélum og ekki fundið þau...fyrr en í dag. Þessi fínu stígvél og það á rétt rúmar 10.000 kr. ! Nokkuð sátt við þetta. Mér hefur samt fundist ótrúlegt hvað það er erfitt að finna flotta skó. Þar sem ég neita að vera þræll tískunnar er hægara sagt en gert að finna skó við hæfi....og þegar ég sá þá í dag...var ekki spurt tvisvar hvort fjárfesta ætti í þeim. Nú bara hlakka ég til að vera meðal fólks og spóka mig um í nýju bootsunum.
Heimsóttum Liljuna og fjölskyldu og gengum út með eitt sófaborð ;) Ekki amalegt það... og það svona smell passar inn í nýju íbúðina ;) Langar mest að hekla einhvern brjálæðislega hallærislegan ömmudúk á borðið... og fara í háa hæla með rúllur í hárinu og bjóða upp á te og heimabakað bakkelsi sem stendur á nýja borðinu. Ég er svooooo uppi á röngum tíma ;)
Skellti mér í bíó áðan, var í pössun þar sem ég er grasekkja í kvöld. Sá Charlie's Wilson war. Mæli með þeirri mynd. Mjög góð mynd og kaldur húmor...einmitt það sem ég fíla.
Er enn ekki búin að gera upp við mig hvort ég fari á stúfana á morgun og fá mér bollu. Er ekkert voðalega spennt fyrir því... en langar samt pínu. Var að rifja það upp í dag hvað ég varð fyrir miklum vonbrigðum með bolluna mína í fyrra. Gekk á milli bakaría því ég vildi ákveðna tegund... sem er sú algengasta en einhverra hluta vegna illfáanleg. Enduðum uppi á Laugarvegi, ég tók mér góðan tíma í að velja réttu bolluna og varð svo fyrir þessum þvílíku vonbrigðum með hana að ég næstum því man enn hvað hún var vond. Eiginlega óttast ég að leikurinn endurtaki sig þetta árið. Auðvitað ætti mar bara að vera alvöru húsmóðir og skella í nokkrar bollur en ég vil helst ekki eyða litla frítíma mínum í það, þessa helgina.
Í gærkveldi fékk ég heimsókn frá menntaskólasystrum mínum. Mjög svo ánægjuleg stund sem stóð til rúmlega 4 í nótt. Gátum talað um heima og geima ( í orðins fyllstu merkingu), rifjuðum upp gamla tíma og skoðuðum myndir frá þeim árum. Ég segi nú bara....hvað var eiginlega í gangi með mann???? En ótrúlega gaman að rifja upp öll prakkarastrikin og brallið okkar og ætlum við að hittast fljótlega aftur til að taka upp þráðinn....því það er ekki séns að komast yfir allar minningarnar á einu kvöldi!!

Ingimars 1:01 AM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered