Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


þriðjudagur, mars 18, 2008

Ég hleyp og ég hleyp og ég hleyp. Bara alltaf að hlaupa. Dugar ekkert annað fyrir sumarið. Náði reyndar einkar góðu hlaupi áðan...það er eflaust vegna þess að ég er orðin STUTTHÆRÐ!! Já mikið rétt.... tók þessa svaka ákvörðun á sunnudag að bara láta 90% af hárinu fjúka... gerði það nú reyndar ekki sjálf. Eiginmaðurinn fékk að gera það. Enda klippti ég hann heilmikið á föstudagskvöldinu....föttuðum 5 mín fyrir árshátíð að hann var með SVAÐALEGAN lubba... og þess vegna stóð ég í sparidressinu yfir baðherbergisvaskinum og klippti hann svona fínt líka. Var alveg að passa upp á það að halda smá rokki inni en samt með snyrtimennsku í fyrirrúmi ;)
Fórum á þessa fínu árshátíð. Svaka stuð og gaman. Tókum road trip eftir hátíðina og kynntum nágrannasveitarfélagi. Fór í sveit á laugardag, sá enga kind á beit en eltum rebbaspor í hálftíma...var alltaf að bíða eftir að sjá kolsvartan rebba sem biði eftir því að ráðast á mig... fattaði það síðan daginn eftir að rebbar skipta um lit þannig að rebbinn sem beið eftir að ráðast á mig var ekki svartur heldur hvítur og því grunar mig að hann hafi séð mig meira en ég hann :( ohhhhhh spúkkí. Krílahittingur í gær og hlaupi-skaup í dag. Hlakka til þess að fá páskana. Sé fram á að geta sofið út EINN dag sem er náttla glæpur. En boy hvað ég ætla að njóta þess ;)

Ingimars 10:02 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered