fimmtudagur, mars 27, 2008
Já sæælll. Núna er ég búin að mæta tveimur unglingum, strákar í bæði skiptin, á vappi í hverfinu með tannbursta!! Hvað er það?? Ég veit alveg að það koma svona unglingadellur...voru ábyggilega einhverjar þegar mar var sjálfur unglingur en að ganga með tannbursta um miðjan dag..nánast úti á götu er bara EKKI kúl. Fyrst voru það náttbuxur hjá þessum greyum og svo tannburstar!!! Hvað næst? Klósettpappír upp úr nærbuxnastrengnum?? Ég er klárlega orðin gömul!
Ingimars 10:16 PM