mánudagur, mars 03, 2008
Komin heim!!! Köben var að sjálfsögðu yndislegt. Frábært að kúppla sig frá öllu og bara njóta lífsins enn meir ;) Líka ótrúlega gaman að taka bara svona "skyndiákvörðun" á þriðjudegi og skella sér til Köben á föstudegi. Ætla ekki að fara að rekja ferðasöguna í díteilum en þetta var náttla gaman frá a-ö. Förum fjórar skvísur saman, sú yngsta 16 mánaða. Ótrúlega gaman að hafa svona litla snúllu með sem lét mann alveg gleyma því að mar væri flughræddur. Hefði alveg þegið að hafa hana með í heimferðinni ;) Fengum góðar og fjölmennar móttökur á Kastrup. Fórum beint af flugvellinum heim til Helgu B. og nutum þess að knúsa nýjasta meðlimin í crewinu sem hefur ekki náð 1 mánaðar afmæli ;) Skelltum okkur svo á hótelið með töskurnar, út að borða og kaffihúsabrölt og chatt. Gelgjusvefngalsi,föttuðum að við sjáum fáranlega illa, gluggainnbrotsþjófur, og sjóveikisgólf var þema kvöldsins. Á laugardeginum var bara ræs snemma, morgunmatur þar sem sumir völdu eingöngu mat sem lyktaði eins og úldnir sokkar sem höfðu þornað í útrunnu sinnepi. Drifum okkur út og tækluðum búðirnar. Byrjuðum í HM og vorum þar í 2 klst! Æ kidd jú nott....enda var mar þokkalega búinn eftir það! Liljan bættist svo í hópinn, Strikið hlaupið, kaffihús með Knúsanum, makeover og út að borða. Ummmm finn enn góða bragðið...hvítvín sötrað og kynskiptingar ræddir. Kokteilar og léttvín, heim á hótel í koddaslag ;)
Byrjuðum síðasta daginn á heimsókn til litlu fjölskyldunnar, hlaupið í þrjár búðir, spisað á chilis og farið út á völl. Minns tekinn í stripp-vopnaeftirlit. Er alvarlega að spá í að kæra trukkalessuna sem þuklaði á mér! Ágætis flug fyrir utan síðustu 30 mín. sem voru 30 mín. í helvíti. Lifðum þetta þó af, drifum okkur út og fórum heim :) Yndisleg ferð og gaman að vera með góðu fólki ;)
Ingimars 9:20 PM