Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


miðvikudagur, apríl 09, 2008

Hellú. Mar svo bissí að mar kíkir ekki einu sinni hingað inn. Ágætt reyndar að taka sér bloggskrifa og lestur frí. Þá hefur mar svo mikið að skoða næst ;)
Er lasin pas núna, búin að hanga heima í einn og hálfan dag... segi nú kannski ekki beint að hanga...en alla vega heima búin að vera. Var komin á fætur fyrir kl 7 í morgun. Búin að setja Friends í tækið kl 7:20. Ekkert jafn hressandi og Friends í morgunsárið. Er á fullu að ná bata... vil sko ekki vera lasin þegar minns fer til útlanda..en það styttist óðum í það ;)
Var í mjög skemmtilegu partý síðasta laugardagskvöld. Fórum heim 4:30....sem mér þykir nokkuð góð frammistaða miðað við það að ég var á bíl!! hahahah fékk að heyra margar sögur af mér frá því í gamla daga. Gott að ég er með svona sterk bein, tók ekkert inn á mig né móðgaðist ;) Enda var ég svo frábær krakki og unglingur.
Næsti föstudagur er virkilega stór dagur í lífi mínu. Þá verð ég 10.000 daga gömul!!! Planið var að halda þvílíkt upp á það... jafnvel með innflutningspartý. Settumst niður og gerðum lista yfir gesti. Skárum þvílíkt niður.. enduðum í 53 einstaklingum!!! Já sæll....sópuðum öllum áætlunum um partý undir borðið. Verður kannski haldið þegar ég verð 20.000 daga gömul. Þá á mar kannski nógu stórt pleis fyrir allt liðið!!

Ingimars 2:52 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered