Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


miðvikudagur, maí 21, 2008

Í brjálæðislegri hrifningu minni í gærkveldi var ég engan veginn hæf að koma með komment á keppnina. Ég mun því skila inn mínu atkvæði nú.
Keppnin byrjaði þokkalega, Serbar hafa greinilega fundið ,, fallegasta" fólkið í Serbíu, kennt því ensku og skellt upp á svið. Þau náðu engan veginn að mynda svona kemestrí á milli sín sem er nú löngu orðið frægt á milli júrókynna. Skiluðu þau jobbi sínu ágætlega. Ætla að stikkla á stóru í gegnum keppni gærdagsins.
Montenegro hóf keppni, líkt og Íslendingar munu gera á fimmtudag. Sjarmör dauðans í búning í stíl við gellur. Rauðir hanskar alveg málið en rafstuðshárið eitthvað off.
Israel spilaði fram súkkulaði brúnu steratrölli. Hélt fyrst að kona væri að syngja í byrjun, svona af því hann sást ekki strax ( voða spennandi.. er þetta karl? er þetta kona? nei þetta er steraböggull!)Ágætislag svo sem.
Andorra með afleitt lag og gellan með eitthvað brynvarnardrasl á höfðinu sem var EKKI að gera sig. Armenia með katsí lag en afleita búninga! Hvað var málið með horbjóðs Charleston kjólinn?? Og allt í svörtu, hvítu og gráu??? We want colours!!
Azerbaijan full rokkaðir fyrir mig og það er eitthvað við konur sem eru útataðar í blóði, þær bara kveikja ekki í mér. Bosnia með sýrutripp aldarinnar... og leiðinlegt lag!!! Eistar með enn sterkara sýrutripp. Svo fyndið tripp að það var fyndið! Var alveg að fíla bíkinigellurnar sem voru að drukkna í proppsi. Ekkert smá mikið að gera hjá þeim með alla þessa fána, skilti og bara alles. Gaurarnir það kjánalegir að það var eitthvað sætt við þá. Finnar með gamlan brandara. Okei, Lordi vann með rokki en mar sendir ekki sama atriðið í 3 ár!! Þetta er eins og við hefðum sent Sylvíu Nótt í þrjú ár í röð ( sem væri reyndar ógó fyndið ). Grikkir voru alveg að meika það að mínu mati. Sjó, gott lag, litir og hæfilegt propps. Textinn minnti á B. Spears texta, gítarspilið eins og frá Justin og sjó og dans eins og Beyoncé.. spái þessu lagi velgengni. Írar skutu aðeins yfir markið...þó að kalkúninn hafi verið góður, hefðu þurft meira kettsí lag, enda komust þeir ekki áfram. Móldovía með HRÆÐILEGT atriði. Hvað var málið með gömlu kellinguna í tuskum og með BANGSA!! Það sorglega við þetta er að lagið er allt í lagi í svona þriðju hlustun.. og þá meina ég með því að hafa lokuð augun og ímynda sér eitthvað allt annað en gelda kartöflubóndakellingu. Holland ekki að meika það þetta árið. Gleymanlegt lag. Noregur!! Júhú fínasta lag sem ég vona að gangi vel í aðalkeppninni. Eitthvað svo óendanlega krúttlegt við hana Maríu ;) Pólland... úff hvar á ég að byrja? Alltof hvíttaðar tennur, misheppnað brúnkusprey, gamall fegurðardrottningarkjóll.. og já ÖMURLEGT LAG! Romania með leiðinlegt ástarvæl en komst samt áfram, Rússar með súríalískt atriði. Hvað var málið með 300 milljón króna fiðluna og heims og olympíumeistara á skautum??? Komu laginu bara ekkert við. Slovenia með euro-trash hipp hopp lag og hjólaskó. Verðum að elska þau fyrir að reyna. San Marino með eitthvað leim boy-band, enda í fyrsta sinn með í keppninni.
Jæja þá er þetta komið... tel niður klst í næstu keppni... spái Svíum velgengni, Úkraníu og Frakklandi ;)

Ingimars 6:28 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered