Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


fimmtudagur, maí 08, 2008

Dagur númer fimm! Já sæll félagi. Þetta fer alveg að verða gott sko. Tækl-liðið mætti þó í gær og veikindin voru sko mössuð. Litli snillingur mætti með allt stöffið sem kellingabækurnar segja að virki á veikindi..og svei mér þá það virkaði eitthvað. Alla vega hefur hitinn minnkað mjög og ég gat kyngt munnvatninu í dag!! Veiii. Þetta má samt alveg fara að klárast. Kláraði 3.seríu af Sex and the city í dag. Núna er ég búin að horfa á 1.2. og 3. Meira á ég ekki. Ég er bara pínu sjokkeruð á þessum þáttum. Heilmikið sem ég vissi ekki að hefði gerst, eins og t.d. í 3.seriu þegar Carrie er bara á fullu að halda framhjá með Mister Big. Og það er bara látið sem það sé allt í lagi!! Er ekki í lagi ? segi ég nú bara. Get aldrei verið sammála því að framhjáhald og annars konar cheating sé í lagi.
En í veikindum reynir mar að finna eitthvað jákvætt. Ég er t.d. að spara rosalega mikið í skónotkun. Ég er ekkert að nota útiskóna mína, þannig að ég er alla vega búin að spara fimm göngudaga. Parktískt??
Síðan prófaði ég að taka af mér naglalakkið fyrir þremur dögum og ég hef ekkert sett á neglurnar í þrjá heila daga!! Sem er persónulegt met. Fyrra met var einn dagur. Síðan árið 2000 hef ég alltaf haft eitthvað á nöglunum og núna ákvað ég fyrst að ég er hvort eð er föst inni að prófa að go all nude on my nails. And ó boj ó boj...I HATE IT! Það er ekkert smá asnalegt að vera með berar neglur. Mér líður eins og ég sé einhver holdsveiki sjúklingur eða þjáist af einhverjum alvarlegum vítamínskorti eða eitthvað álíka. Ég held að ég gefist upp í kvöld og lakki þær. Auk þess þarf ég að prófa mig áfram með skraut fyrir laugardaginn, því ég SKAL mæta í bryllupið.
En við lítum björtum augum á framtíðina og þar sem hitinn var minni í dag en í gær hlýtur hann að vera nánast enginn á morgun :)

Ingimars 6:05 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered