Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


þriðjudagur, maí 20, 2008

Þá er fyrsti í Júróvision liðinn. Þetta var bara tæpt á tímabili hjá manni. Sá fram á að missa af hluta keppninnar :( óttatilfinning fór um manns. En mar rétt náði heim, tók bara vinnu með mér og náði að horfa. Reyndar soldið skrýtið að horfa aleins !! Minns grasekkja núna en makinn horfði á þetta í gegnum netið í úglandinu og svo ræddum við frammistöður hinna ýmsu þjóða með sms. Ég get varla lýst spenningnum sem fór um mann þegar úrslitin voru kynnt. Ég var með allt rétt!! Reyndar var ég ekki viss með Rúmeniu. Fannst það ekkert spes lag en það komst áfram. Hélt með tveimur lögum, Noregi og Grikklandi. Þrusu góð lög. Enda ætlaði minns að fara á límingunum þegar það var verið að lesa upp úrslit og aðeins eitt lag eftir.. og bara damm damm dammm og minns svo spenntur og Noregur ekki kominn áfram og svo bara NORWAY! ÉG hoppaði upp úr sófanum, rétt náði að skyrpa teppinu úr munninum því ég var búin að borða það hálft í æsingnum! Þvílík fagnaðarlæti. Tók strax upp símann og hringdi til útlandis... og öskraði NOREGUR ÁFRAM NOREGUR ÁFRAM... og það heyrðist bara Huuuuhhh????? ,,Ástin mín, netið er aðeins seinna með útsendinguna heldur en sjónvarpið..... við erum ekki komin svona langt í úrslitunum." Úpppsss var það eina sem ég hugsaði... ummm sko ég vildi bara láta vita að Noregur kemst áfram..... úppsss.
Síðustu dagar hafa verið mjög bussí...hef eiginlega ekkert getað spáð eða undirbúið mig fyrir Júró. Helgin fór í eitthvað allt annað en Júró-undibúning. Ætla að athuga á morgun hvort mar afreki eitthvað. Kíkti á föstudagsabend á Biffsterinn...sem mar fer nú bara að kalla Master Biffer. Góðmennt í bjór og spjall. Tíaði mig heim langt eftir miðnætti enda langur dagur framundan. Tók þátt í heljarinnar gæsun á laugardag. Gæsun númer 2 á innan við mánuði! Ég ætti bara að fara að stofna bissness í kringum þetta. Rosa skemmtilegur dagur og mikið brallað. Skellti mér síðan á reunion um kvöldið. Mar svo gamall. Fimm ára reunion frá háskóla. Var þar til miðnættis og skellti mér þá aftur í gæsapartý. Frétti um hálf tvö að það væri þrusu partý HEIMA HJÁ MÉR!!! Þannig að ég ákvað að fresta bæjarferð og skella mér þangað. Þvílíkt stuð á liðinu, singstar og læti. Rosa gaman og fólk skrölti í bæinn kl. 3. Þá var minns svo þreyttur að hann fór bara að lúlla sér. Gat þó skemmt mér við það daginn eftir að horfa á vídeóin sem voru tekin upp um nóttina :) Átti algjöran letidag og labbaði svo í bíó-ið við endan á götunni og sá ástar-grínmynd :) Ahhhhh segi ég nú bara... en WHAT segi ég nú bara.... 1000 kall í bíó!! Hvaða geðveiki er þetta ????

Ingimars 9:10 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered