Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


föstudagur, maí 23, 2008

Þetta var nú aldeilis! Keppnin í gær olli engum vonbrigðum. Hæfilega mikill skammtur af lélegum lögum, asnalegum fötum, góðum lögum og lýtaaðgerðum ;) Svona á þetta vera. Óttaðist að ná ekki byrjuninni...föst í einhverri umferðarteppu...allir náttla á ferðinni að koma sér á sinn Júró-stað. Náði þó rétt í Kórana, settist niður í góðum félagsskap og með pizzu og naut þess að horfa á stóra sjónvarpið sem boðið var upp á. Ungabörnin ( sum samt ekki svo ung ) alveg að fíla keppnina og tel að Júró er svipað og alkóhól, um að gera að byrja snemma. 19 mánaða snúllan dillaði sér í takt við góðu lögin og við gamlingjarnir hraunuðum yfir lélegu lögin. Úrslitin komu mér á óvart ég bara verð að segja það.....átti von á að súkkulaðihúðaði Bangsímon myndi koma okkur upp úr keppninni. Þetta krefst lagfæringa og tilfæringa á dagskrá morgundagsins... en þetta hefst allt, sérstaklega þar sem ég fékk svona góða hjálp frá henni Hlínzu minni ;)

Ingimars 9:20 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered