laugardagur, júní 28, 2008
Hvað er betra en að blogga þegar mar bara engan veginn fær sig til þess að fara að sofa??? Þetta er alveg yndislegur tími... bjart allan sólahringinn, sól og blíða alla daga og yndislegt líf. Hvað er hægt að biðja um meira?? Jú kannski lægra bensínverð, kurteisari Íslendinga og betri laun... en hey! Mar fær ekki allt sem mar vill strax. Undanfarið hef ég verið að skríða í bólið milli 1-2. Ég sem er vön að fara að sofa um 23-leytið!!! I KNOW!! Ég gæti alveg eins drukkið sérri og farið í flýtiinnritun á Grund en það er bara eitthvað við andrúmsloftið, ég bara fæ mig ekki í rúmið og er stöðugt að bralla eitthvað fram eftir nóttu. En það er ekki eins og mar sofi síðan eitthvað út! Ó nei, ræs and sjæn alla morgna kl.6:48 enda er mar búinn að vera ansi þreyttur síðustu tvær vikur. Þessar tvær vikur hafa nú samt einkennst af letilífi og slappelsi. Ég er nefnilega búin að breyta smá um lífstíl og er orðin,,dönsk". Já ég lét loks verða af því og ákvað að sumarið 2008 myndi ég haga mér hér heima eins og ég haga mér í Köben. Kynnti áætlanir mínar fyrir Miss Hlínzu um daginn, féllu þær í kramið hjá henni og nú hlakka ég bara til hvort mér takist að fá fleiri með mér í þennan lífstíl ;) Lífstíllinn einkennist af slappa-af-elsi, hang-elsi, chilli og notaleg heitum. Hef t.d. ræktað áhugmálin ( hálf skammast mín þegar ég segi að það eru akkúrat fimm ár síðan ég sinnti áhugamálum), fer í gönguferðir, nýt lífsins og meira að segja í gær eftir vinnu settist ég út á svalir í sólbað og las!! Eitthvað sem ég hef ALDREI gert! Málið er að mér finnst ég alltaf eiga að vera að gera eitthvað annað en að hafa það kósí og smart og núna hef ég ákveðið að breyta þessu hugarfari! Þannig að verið ekki hissa ef þið sjáið mig chilla í Hljómskálagarðinum á köflóttu teppi með kaldan svaladrykk :)
Ein aðvörun í lokin. Ég skrapp stutt í Smáralind í dag til að athuga með örfáa hluti fyrir útlanda ferðina. Kíkti í Debenhams á rokna útsölu þar. Sá ég ekki þennan baby-bleika kósí smósí náttkjól á 70% afslætti. Hagsýna húsmóðirn gat bara ekki látið þetta fram hjá sér fara og ákvað að skella sér á hann. Náttkjóllinn átti að kosta nokkra hundraðkalla á útsölu!! Minns skellti sér á kassa, díkk heyrðist, varan skönnuð og upphæð lesin upp. Ég rétti kortið, kvittaði fyrir og hélt mína leið. Þá fattaði minns að ég hafði lesið allt aðra upphæð á 70% útskýringarplagginu sem hékk um alla búð. Kíkti á strimilinn og tók þá eftir því að ég hafði sko ekkert fengið 70% afslátt!! Fékk eiginmanninn til að labba með mér aftur að kassanum og benda á þessa vitleysu ( þorði því ekki sjálf ) og stelpan ætlaði nú ekkert fyrst að bakka með þetta en þá kom í ljós að kassakerfið er EKKI að reikna 70% afslátt af vörunum heldur minna!! Halló!!!! Það er sem sagt verið að svindla á kúnnunum!!! Ok þetta var kannski ekki rándýr vara en ef fólk er virkilega að kaupa mikið þá getur nú alveg munað um peningin og fólk kannski áttar sig ekki á því að búðin svindlar á manni! Finnst ykkur þetta ekki rosó??? Ég ætla nú ekki að breyta þessu í eitthvað kvartblogg, langaði bara að deila þessu með ykkur ;)
Ingimars 12:35 AM