fimmtudagur, júlí 10, 2008
Ég fer í fríið, ég fer í fríið, ég feeeeerrrr í fríið! Ohhhh hvað það er yndislegt að vera í fríi!!! Ekki skemmir veðrið og félagsskapurinn fyrir. Búin að rækta afslöppunargenið á fullu og geri bara skemmtilega hluti. Fór í smá road trip í gær. Stökk reyndar eitthvað óundirbúin út í bíl og gleymdi alveg ÖLLU út á landi dótinu mínu. Mar fer náttla ekki lengra en Rauðavatn nema vera með pikknikk dótið og landakort. En þrátt fyrir að hafa gleymt bráðnauðsynlegum hlutum heppnaðist ferðin ágætlega. Hef farið í nokkur skemmtileg heimboð undanfarið og sé fram á það að afreka ótrúlega margt þetta sumarið. Fer bráðum að stinga af í enn meiri sól og afslöppun ;) Hlakka ótrúlega til, hlakka reyndar ekki eins mikið til að pakka! Mér finnst ég alveg þurfa ógeðslega mikið af skóm með mér! Why?? Ég hef aldrei verið með eitthvað skó fetish en er alveg að drukkna núna. Er komin með einhver 8 pör sem ég vil taka með en ég held að verði að minnka það niður í 4!! Hvað geri ég ???
Ingimars 3:05 PM