Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


föstudagur, júlí 11, 2008

Hafið þið ekki lent ótrúlega oft í því þegar þið vaknið að þið eruð bara alveg að bresta í söng, stökkvið upp úr rúminu, takið nokkur dansspor, allt í einu eru komnar bakraddir úr fataskápnum, umferðin úti stöðvast, dansandi strætóbílstjóri syngur til ykkar og trén breytast í hot sexí dansara í laufskýlum?? EKKI ??? hummm ætli þetta sé bara ég? Ég hef alloft um ævina sagt ,,Ef lífið væri bara söngleikur" Ég er með einhverja leynda löngun í svona atburð.... að allt breytist í söngleik og allir syngi, dansi og eru glaðir. Þá væri allt eitthvað svo miklu skemmtilegra.
Ég hef alltaf verið aðdáanda dans og söngvamynda. Ég er samt enginn meiníak... á sko ekkert voðalegt safn og er nú ekkert alltaf að glápa á svona snilld en það eru nokkrar myndir sem hafa virkilega hreyft við manni ef mar getur sagt sem svo. Ég man það ótrúlega vel þegar ég sá Sound of music fyrst. Þarna var komin mynd sem sameinaði allar mínar ástríður og á tímabili hélt ég hreinlega að ég væri Maria. Ég hef alltaf haldið tryggð við þá mynd, fjárfesti meira að segja í rándýru dvd eintaki af henni fyrir nokkrum árum og horfi reglulega á hana. Ég hef síðan alltaf verið að leita að annarri mynd sem hreyfir jafn mikið við manni og bara ekki fundið hana. Þangað til í október á síðasta ári. Þá var ég stödd í Stokkhólmi og skellti mér í bíó á myndina Hairspray! Almáttugur!! Þarna var komin mynd sem var næstum því betri en Soundið. Ég ætlaði bara ekki að trúa því að slík mynd yrði einhvern tímann gerð. Þegar sirka 30 mín voru liðnar af myndinni fattaði ég að ég var búin að brosa eins og kjáni allan tímann og var komin með þvílíka verki í kinnar og eitthvað sem svipaði til fjörfisks, slík voru átökin í gleðinni. Hairspray var algjört æði og þegar við löbbuðum úr bíóinu að hótelinu söng ég og dansaði um miðbæ Stokkhólms!! Fékk síðan myndina á dvd í jólagjöf og held þvílíkt upp á hana. Ég hélt síðan að það væri ekki hægt að toppa þessa líðan þangað til í gær. Þá skellti ég mér á Mamma mia. Minns þvílíkt búinn að bíða eftir þessari mynd og því var drifið í því að skella sér á hana áður en mar fer af landi brott. Var einhvern veginn viss að hún væri ekki sýnd í bíó í ítölsku fjallaþorpi!! Októberlíðanin helltist yfir mig sinnum 4 í gær. Þvílík schnilld þessi mynd! Ég mæli með henni, þarft reyndar að fíla Abba lög en hún er samt frábær. Og alveg þess virði að sjá Pierce Brosnan syngja en það sér mar nú ekki á hverjum degi. Brosti allan hringinn allan tímann og verkjaði í líkamann af gleði og hlátri. Labbaði síðan heim úr bíó syngjandi og dansandi og lyfti nokkrum augabrúnum á körfuboltadrengjum sem voru úti við leik. Í dag er svo Abba þema á heimilinu, Abba lög í botni öllum nágrönnum mínum til ómældrar ánægju ;)

Ingimars 10:30 AM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered