sunnudagur, júlí 27, 2008
Hellú again. Míns komin til landsins. Komin heim ALLSLAUS!!! Á ekkert til að vera í eða snyrta mig með því TÖSKURNAR KOMU EKKI MEÐ TIL LANDSINS!!! Skrýtinn morgun í morgun, var að leita að fötum til að vera í og pússla saman einhverju dressi því öll mín bestu föt eru í Egyptalandi eða einhvers staðar þar. Fór í sturtu, átti sem betur fer gott sjampó sem ég tók ekki með í ferðina en fattaði þegar ég var búin í brusebad að hárburstinn var í töskunni, andlitskremið var í töskunni og bara svona allar nauðsynjar sem mar notar dags daglega. Ótrúlega skrýtin tilfinning að hafa ekki dótið sitt. Fengum over night kit frá Icelandair í sárabætur. Það er bara fyndnasta kit ever!! Ótrúlega sexí hvítur stuttermabolur í XL !! Tannkrem í einhvers konar túpu sem lítur ekki út á nokkurn hátt fyrir að vera tannkrem... ég hélt fyrst að þetta væri túrtappi! Skrýtin plast hárgreiða sem ég get alveg GLEYMT að komist í gegnum hárið, deodorant sem lítur út fyrir að vera varasalvi, tannbursti sem myndi ekki henta 1 árs gömlu barni, svo lítill er hann, andlitskrem og cleansing milk. Ohhh I feel soooo much better! ahahha en verst finnst mér um fötin og dýru dýru hlaupaskóna. Ætlaði einmitt að fara að hlaupa á ný í sumarfríinu mínu... það verður að bíða betri tíma. Líka skrýtið að fá ekki allt það nýja sem mar keypti í HM :( En við komumst heim sem var reyndar mjög tvísýnt. Fengum synjun SJÖ sinnum að við fengjum að fara um borð. En við gáfumst ekki upp og stóðum í EINA KLUKKUSTUND yfir ítölsku "hresspíunni" og fórum fram á það að fara með vélinni, rosa action og mikil spenna. Áttum aðeins 20 evrur eftir af pening og vorum komin með fólk í vinnu að tékka á lausum hótelherbergjum í Milano. Ég hef aldrei verið í þeirri borg þannig að þetta hefði verið voða ævintýri að hoppa upp í lest með 20 evrur og sjá hvað mar kæmist langt. Fengum síðan að vita þegar það voru 15 mínútur í að vélin færi í loftið að við kæmumst með!! Þá tók við ein fyndnasta stund sem ég hef upplifað. Hlupum af stað frá check-innu, byrjuðum að týna af okkur úr, belti, skartgripi á hlaupum. Hlupum niður 100 tröppur í stað þess að fara með rúllustiganum ( vorum viss um að það væri fljótlegra þannig). Komum að securití ( eftir að hafa troðið okkur framhjá milljón manns og ég alltaf Scúsí Scúsí ). Við security var náttla massa röð, einföld eiginlega og við einhvern veginn tróðum okkur framfyrir með því að hafa mig sæta og krúttlega segjandi scúsí á ítölsku. Vorum hálf nakin þegar við komum að gegnumlýsingunni, þrifum eigur okkar af færibandinu og hlupum af stað. Náði að hringja eitt mikilvægt símtal á hlaupunum út í vél og þá fyrst fattaði ég hvað þetta var eitthvað ótrúlega amerískt og eins og í bíómynd en gott fólk!!! Það er hægt að lenda í svona bíómyndaaðstæðum í ALVÖRU!! ;) hihihihi hlupum að gate-inu komumst, um borð inn í vél. Sátum bæði frammí hjá flugmanninum, rétt náðum að spenna beltin og vélin í loftið!!! Við tók rúmlega fjögurra tíma flug og við allan tíma frammí með BESTA útsýní ever!! Svei mér þá held að flughræðslan hafi minnkað pínu eftir ferðina en það var samt soldið mikið scarí í lendingu, soldið sem ég get ekki útskýrt hér :)
Ferðin var samt yndisleg. Bjuggum í villu í tvær vikur með prívat sundlaug og fullt af staffi. Eyddum dögunum í afslöppun og svefn. Einn daginn keyrðum við hjónin reyndar í 2 klst svo frúin kæmist í HM !! Var búin að kanna það vel og vandlega. Á Ítalíu eru 26 HM búðir og sú sem var næst okkur var í 2 klst fjarlægð eða næstum 200 km!!!! Þannig að við settumst upp í bíl, keyrðum, ég náði 1 klst í HM fyrir lokun, keypti massa mikið, fékk ís og keyrðum til baka! Alveg þess virði. Verst að ég hef ekki hugmynd um hvar öll þessu fallegu föt eru núna! Fórum einnig einn dag til Pisa að sjá skakka turninn og hann er bara ýkt skakkur! Gátum ekki farið upp í hann því það var 5 klst bið!! Og hitinn rétt undir 40 gráðum og við höfðum ekki allan heimsins tíma þannig að við bara tókum myndir og lékum túrista. Fórum líka og skoðuðum gamla borg sem heitir Lucca. Rosa sæt og gömul með þröngum borgum. Þegar við komum í borgina sáum við risastóra auglýsingu að það væru tónleikar um kvöldið. Tónleikar með einum fremsta bíómyndalagahöfundi Ítala! Fundum lausa miða og fórum á tónleikana! Algjörlega æðislegir, útitónleikar sem byrjuðu kl hálf tíu um kvöld og stóðu til miðnættis. Yndislegir tónar og tónlist sem mar þekkir frá blautu barnsbeini. Keyptum síðan cd með nokkrum lögum nokkrum dögum síðar, en cd var í ferðatöskunni :(
Leigðum vespur í 2 daga og OMG hvað það var gaman. Var að vespast á 50 kúbikka hjóli eins og pæja. Geymdi veskið mitt í "skottinu" og skottaðist um víðan völl. Náði vespunni upp í 60!! Keyrði líka nokkrum sinnum bíl þarna út og ég segi bara OMG umferðin þarna var körazzí! Ég treysti mér til þess að keyra hvar sem er eftir þetta. Milljón hringtorg út um allt, allt morandi af fólki á vespum sem fer bara sínar eigin leiðir og mar þarf þvílíkt að hafa augun opin. Var feginn að ég var aðeins búin að keyra þarna úti þegar ég fór á vespu því það er ekkert smá skrýtið að vera bara ótrúlega lítið varin fyrir öllu, sitjandi á vespu á kannski 50 km hraða þegar allir í kringum mann keyra á 90. Soldið sérstök tilfinning en æðisleg. Er byrjuð að safna mér fyrir einni slíkri NÚNA!!!
Fríið heldur áfram og ætli það hefjist ekki bara á því að mar fer að leita í gömlum kössum að einhverjum fötum sem hugsanlega geta nýst manni :(
Ingimars 7:34 PM