mánudagur, ágúst 11, 2008
Ég á ekkert, akkúrat ekkert :( Um helgina var ráðist í hið langa verkefni að taka geymsluna. Fyrir áhugasama þá flæddi inn í geymsluna síðasta vetur og við erum að tala um FLÆDDI! Dótið tók syndandi á móti manni, hentum helling þá, þurrkuðum geymsluna og skiptum um hillur. En svo kom babb í bátinn, raki hafði komið sér vel fyrir í öllu og það komst myglusveppur í fína dótið manns :( Enginn tími hefur almennilega gefist til þess að tækla málið að alvöru, en það þarf einmitt að gera það þannig en síðasta helgi var tekin með trompi. Byrjað var á því að HENDA ÖLLU út og þá meina ég öllu. Held að afmælis og jólalistinn verði ansi langur þetta árið enda orðin fátækari. Öllu sem sagt hent og eitrað og eitrað og eitrað. Í dag fór míns svo og keypti málningu og tilheyrani. Kríjaði út 30% afslátt ( þorði ekki að biðja um meira) og var nokkuð ánægð með kaupin. Brunaði heim og byrjaði að mála. Náði að mála loft og veggi. Á morgun verður síðan farið yfir það aftur og á miðvikudag lakkar míns gólfið! Já nóg að gera og minns byrjaði líka að vinna aftur í dag sem var nú óttalega gaman. Er reyndar að farast úr þreyttu, fór ekki að sofa fyrr en 3:30 í nótt og mætti eiturhress í vinnið. Held að það verði bara aflöppunar og kúri kvöldi í kvöld. Keypti mér líka 1 kg af hindberjum áðan. Ætla að athuga hvað ég get borðað mörg hindber á einu kvöldi ;)
Ingimars 9:11 PM