Superwoman
S
u
p
e
r
w
o
m
a
n


sunnudagur, ágúst 03, 2008

Hahahah ég hló svo mikið þegar ég sá fréttirnar í kvöld. Eyjabúar að búa sig undir að koma 13.000 manns í gistingu því spáin er svo krappí að ekki er víst að hátíðargestir komist í land!! Hahahah ég verð nú að viðurkenna að ég get lítið vorkennt liðinu, það kaus að fara á eitthvað sker út í buska, drekka sig fullt þar og blotna...og er nú fast þar!
Að venju var ég í bænum þessa helgi. Finnst það LANG best. Ég vil sko fá að ráða mínum tíma sjálf og ef ég fæ einhverja óstjórnlega löngun til þess að tjalda með drulluna upp á bakk og hor í hnakkanum þá geri ég það. Ég er á móti því að það sé einhver ein helgi sem "á" að vera ferðahelgi. Auðvitað er það undir hverjum og einum komið hvenær hann fer og hvert en ég get ekki séð annað en að þetta sé ákveðin smölun á litla staði með krappí skemmtiatriðum. En skoðum hvað er t.d. í boði fyrir manneskju á mínum aldri. Jú það eru náttla Eyjar, langt langt í burtu, þegar þú ert komin/n þangað þá ertu pretty much fastur þar, kostar mikið ( dýrara með flugi) og ömurleg skemmtiatriði. Ein með öllu á Akureyri. Þarft að koma þér á staðinn, fólk á aldrinum 18-23 ára fjölmennir þetta árið til þess að sýna skipuleggjundum í heimana tvo fyrir að meina þeim aðgang í fyrra, krappí skemmtiatriði og langt í burtu. Neistaflug á Neskaupsstað. Ummm segir nafnið ekki allt sem segja þarf??
Okei ég man ekki eftir fleirum hátíðum. Það er náttla hægt að fara og tjalda einhvers staðar með gítar og öl í góðra vina hópi en reynslan hefur nú sýnt það að það er ekki hægt hvar sem er. Fullorðnu fólki vísað frá tjaldstæðum ef það hefur ekki krakkagríslinga í eftirdragi, Húsafell fylltist t.d. á fimmtudagskvöldið!! Og það fylltist af FELLIHÝSUM! Og hver á fellihýsi, jú fullorðna fólkið með gríslingana. Þannig að þegar búið er að kanna alla staði ofan í kjölin er bara lang best að vera heima í chilla. ´
Hóf helgina á vínsulli með Hlínzu og Helgu B. Skelltum okkur niður í bæ um 22-leytið. Það var bara svona þokkalegt fólk alls staðar og ég hafði orð á því að það væri nú bara ágætt lið í bænum í kvöld þar sem allir plebbarnir væru í Eyjum. Þegar við gengum út af Bronzinu um nóttina tókum við eftir miðurskemmtilegu liðið þar fyrir utan í annárlegu ástandi. Þá gall í Hlínzu ,,Alltaf einhverjir sem missa af Herjólfi" hahah ég hefði ekki getað verið meira sammála ;)
Á eina viku eftir í fríi, ætla að njóta þess í botn... fer næst í frí næsta sumar! Ætla að reyna að dúttla eitthvað í íbúðinni og rækta Danann í mér í leiðinni.

Ingimars 10:09 PM




Gamalt super

Gestabókin mín

Powered by counter.bloke.com


Perkí

My ego!

Biffsternator

Stella gella

Skordal

Happy Kriss

Speisid minns


2002 LMH | blogger | yaccs | extreme | and anything else



Blogger Powered